Heildarlausnir í pípulögnum
Við bjóðum upp á alhliða pípulagningaþjónustu fyrir heimili og fyrirtæki. Teymið okkar sér um allt frá viðhaldi til flókinna lausna með fagmennsku, áreiðanleika og persónulegri þjónustu að leiðarljósi.
Traust og fagleg pípulagningaþjónusta fyrir heimili og fyrirtæki.



Fremstir í okkar fagi
Baðkob ehf. er alhliða pípulagningafyrirtæki sem leggur sig fram við að þjónusta viðskiptavini á sem bestan hátt á öllum sviðum pípulagninga. Við sérhæfum okkur einnig í golfhitafræsingum og búum yfir öflugum tækjabúnaði sem leyfir okkur að þjónusta viðskiptavini á sem hraðasta og hagkvæmasta máta. Hjá Baðkob starfa öflugir pípulagningarmeistarar og píparar sem sjá til þess að verkið sé unnið á faglegan og fljótan hátt.

Fagleg þjónusta
Við tryggjum vandaða vinnu, skjóta framkvæmd og áreiðanlegar lausnir fyrir hvers kyns pípulagnaverk.

Sérhæfð tækni og öflugur búnaður
Með nútímalegum tækjabúnaði bjóðum við upp á nákvæmar, hagkvæmar og öruggar lausnir, þar á meðal gólfhitafræsingar.
Framúrskarandi Pípulagningarþjónusta fyrir Þitt Heimili
Hjá okkur færðu alla þjónustuna á sama stað en við höfum úr að ráða fjöldan allan af samstarfsaðilum þegar viðkemur flotun, flísalagningum og öðrum tengdum múrverkum. Við leggjum mikið uppúr því að skila framkvæmdarsvæði nánast ryklausu að loknu verki. Einnig höfum við úr að ráða öflugri rafstöð sem veitir okkur þann möguleika að þjónusta aðila á þeim svæðum þar sem erfitt kann að vera að komast í öflugar rafmagnstengingar.
- Fagmennska í hverju skrefi
- Hröð og áreiðanleg þjónusta
- Sérhæfðir í gólfhitafræsingum
- Heildarlausnir frá A til Ö
- Gagnsæ og sanngjörn verðlagning

Almenn pípulagnaþjónusta
Hjá Baðkob ehf önnumst við alla almenna pípulagningavinnu með sterka fagþekkingu og víðtæka reynslu. Við sjáum um lausnir fyrir heimili og fyrirtæki og tryggjum áreiðanlega, faglega og vandlega þjónustu á öllum helstu sviðum pípulagna.
Baðherbergi
Við gerum heildarkostnaðaráætlun og veitum aðstoð við hönnun og uppsetningu nýs baðherbergis.

01.
Nýlagnir og endurlagnir
Getum tekið allt frá einföldum viðgerðum á vaski yfir í heildarframkvæmdir á þinni eign.

02.
Drenlagnir
Við sjáum um endurnýjun á dreni og leggjum ný dren við eldri hús. Vinnum með kröftugum gröfuverktökum þannig að við náum að bjóða upp á góða heildarverðáætlun.

03.
Yfirferð á lagnakerfi
Er hita reikningurinn of hár? Við getum farið yfir kerfið og lagninar og hjálpað þér að lækka hitakostnaðinn.

06.
Við tökum að okkur alls konar verkefni stór og smá.
Það sem viðskiptavinir okkar hafa að segja.
Vandvirkur og frábær fagmaður- mæli 100% með
Anna Pétursdóttir
Frábær þjónusta og góðir fagmenn takk kærlega fyrir mig
Dagmar Aðalsteinsdóttir
Komið á umsömdum tíma. Verkið unnið vandlega og snyrtilega. Góð framkoma og verðáætlun stóðst!
Bjarni Þór
Jakob gerði tilboð í að leggja gólfhita hjá okkur. Allt stóðst eins og um var samið tími, verk og uppsett verð.
Hallvarður Logason
- Fáðu Frítt verðmat og tilboð


